Líkamsárás á Akranesi

Árásarmaðurin var látin sofa úr sér í fangageymslum lögreglu. stækka

Árásarmaðurin var látin sofa úr sér í fangageymslum lögreglu. mbl.is/Július

Nóttin var annasöm hjá lögreglunni á Akranesi. Mikið var um ölvun og var einn handtekin fyrir líkamsárás. 

Braut maðurinn glas á höfði annars á dansleiki sem fram fór í bænum. Atburðurinn átti sér stað um þrjúleytið. Sá sem fyrir árásinni varð leitaði sér sjálfur aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akranesi. Hann var ekki talinn alvarlega slasaður. Árásarmaðurinn var hins vegar handtekinn og látinn sofa úr sér í fangageymslum lögreglu. 

Tveir menn voru þá teknir fyrir fíkniefnamisferli. Voru þeir með vörsluskammta af örvandi efnum, en báðir hafa komið við sögu lögreglu áður. Öðrum mannanna var sleppt í nótt að loknum yfirheyrslum, en hinn verður yfirheyrður í dag.

Þá tók lögreglan mann fyrir ölvunarakstur og var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is