Rooney: Eigum harma að hefna

Wayne Rooney fagnar marki ásamt félögum sínum þeim Patrice Evra og Park Ji-Sung. stækka

Wayne Rooney fagnar marki ásamt félögum sínum þeim Patrice Evra og Park Ji-Sung. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United segir að United eigi harma að hefna gegn Fulham en liðin mætast á Old Trafford klukkan 13.30 í dag. United endurheimtir toppsætið í deildinni með sigri en liðið er stigi á eftir Chelsea og Arsenal.

Þegar Fulham og Manchester United áttust við á Craven Cottage máttu meistararnir sætta sig við 3:0 ósigur og Rooney fékk að líta rauða spjaldið.

,,Það eru breyttar kringumstæður núna þegar við spilum á móti Fulham og við eigum svo sannarlega harma að hefna. Á þessum tímapunkti er hver leikur mjög mikilvægur og við erum svo sannarlega að komast í gott form. Við gerum okkur grein fyrir því að leikurinn við Fulham verður erfiður því Fulham hefur átt annað gott tímabil,“ segir Rooney.

,,Ég hef heyrt sagt að Arsenal eigi léttasta leikjaprógrammið eftir en það er enginn leikur í úrvalsdeildinni auðveldur. Á þessum tímapunkti á tímabilinu skiptir ekki máli hvort þú spilir við topplið eða botnlið, öll lið eru berjast fyrir stigum. “

Fulham hefur aðeins einu sinni fagnað sigri á Old Trafford í 14 tilraunum en það var í október 2003 þegar liðið hafði betur, 3:1.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is