SUF fagnar því að ESB viðræður séu í eðlilegum farvegi
Samband ungra framsóknarmanna fagnar því að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu sé í eðlilegum farvegi og áréttar að ESB umsókn og Icesave eru tvö aðskilin mál. Íslensk stjórnvöld megi því alls ekki gefa eftir í Icesve málinu vegna umsóknarinnar.
Á stjórnarfundi SUF var samþykkt ályktun þess efnis sem segir: „Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, fagnar því að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er í eðlilegum farvegi eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað að mæla með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði aðildarviðræður við Íslendinga.
Ferlið heldur því áfram þrátt fyrir Icesave deilu og mikilvægt er að Ísland mæti til viðræðna með reisn, og gefi aldrei eftir í Icesave málinu vegna umsóknarinnar. Um er að ræða þróun Evrópusamstarfs til framtíðar og ber að vanda til verka.
Ef til aðildarviðræðna kemur mun reyna á íslensku samninganefndina að verja íslenska hagsmuni í samræmi við ályktun flokksþings Framsóknarflokksins frá 2009 um aðildarviðræður að Evrópusambandinu.“






