Aldrei meiri óánægja með Obama
Barack Obama virðist ekki standa undir væntingum Bandaríkjamanna en óánægja með störf hans mælist nú í hámarki samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Gallup þar í landi. Í fyrsta skipti í fjórtán mánaða forsetatíð Obama eru fleiri óánægðir en ánægðir með störf hans þó mjótt sé á mununum.
Fréttaritari danska blaðsins Jyllands-Posten í Washington rekur í frétt á vef blaðsins í kvöld nýjar kannanir sem hafa birst í dag í Bandaríkjunum. Þar kemur fram að samkvæmt Gallup könnuninni eru 47% Bandaríkjamanna ánægðir með störf hans en aðeins 46% ánægðir.
Og Obama kemur illa út í fleiri könnunum en samkvæmt niðurstöðum Rasmussen stofnunarinnar er 55% kjósenda óánægðir og aðeins 44% ánægðir.
Líkur á meiri óánægju
Það er margt sem gerir það að verkum að ónægja með störf forsetans getur enn aukist. Atvinnuleysi er enn mikið, hermenn hafa verið sendir til Afganistan og Íraks. Í fyrra bundu 72% Bandaríkjamanna vonir við að Obama kæmi til með að hafa jákvæð áhrif á orkustefnu landsins en aðeins um 43% nú og síðast en ekki síst virðist nýtt frumvarp Obama um heilbrigðismál fara þversum í þjóðina.
Áhrifanna er enda þegar farið að gæta í kosningum innan fylkja, þar sem þrír síðustu aðilar sem Obama hefur stutt opinberlega hafa ekki náð kjöri. Var þar um að ræða ríkisstjóraembætti í New Jersey og Virginíu og kosning til öldungardeildarþings í Massachusettes.






