Arnar á leið í bikarúrslitaleik

Arnar Þór Viðarsson er lykilmaður á miðjunni hjá Cercle Brugge. stækka

Arnar Þór Viðarsson er lykilmaður á miðjunni hjá Cercle Brugge. mbl.is/Golli

Arnar Þór Viðarsson er feti frá því að komast í bikarúrslitaleik belgísku knattspyrnunnar eftir 3:0 sigur Cercle Brugge á Roeselare, liði Bjarna Þórs bróður hans, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í kvöld.

Ekkert varð af því að bræðurnir mættust að þessu sinni því Bjarni fékk rauða spjaldið í leik Roeselare um helgina og var þar af leiðandi í leikbanni í kvöld. Arnar Þór lék allan leikinn á miðjunni hjá Cercle og Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn Roeselare.

Engu munaði að Hólmari tækist að minnka muninn í 2:1 í byrjun síðari hálfleiks þegar hann átti hörkuskalla eftir hornspyrnu en boltinn sleikti markstöngina hjá Cercle.

Liðin mætast aftur á heimavelli Roeselare 26. mars og þá ræðst endanlega hvort þeirra leikur til úrslita um bikarinn gegn Gent eða Mechelen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is