Innlent
| mbl
| 17.3.2010
| 23:26
Feeling Blue valin áfram af dómnefnd
Þriðja undanúrslitakvöld Músíktilrauna fór fram í Óperunni í kvöld. Að þessu sinni var það rokkbandið The Assassin of a Beautiful Brunette sem fékk flest atkvæði áhorfenda. Hljómsveitin Feeling Blue var hins vegar valin áfram af dómnefnd, en hljómsveitin samanstendur af Björgvini Atla Snorrasyni á gítarleikara og Svani Herbertssyni sem syngur og spilar á hljómborð, og svo tölvu sem sér um restina af hljóðfæraleiknum.
Keppendur kvöldsins komu víðs vegar af landinu: Vík í Mýrdal, Selfossi, Hafnafirði og Akureyri svo eitthvað sé nefnt.
Fjórða og síðasta undanúrslitakvöld Músíktilrauna fer svo fram a morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






