Hótar að senda Armena úr landi

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands.

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Reuters

Forsetisráðherra Tyrkja Recep Tayyip Erdogan hefur hótað að vísa 100.000 armenskum innflytjendum úr landi en nú er talið að um 170.000 Armenar búi í landinu. En forsætisráðherrann virðist enn æfur vegna viðurkenninga Svía og Bandaríkjamanna á að þjóðarmorð hafi verið framið á Armenum í landinu af Ottómönum árið 1915.

Í viðtali við BBC sagði Erdogan að af um 170.000 Armenum sem byggju í landinu væru 70.000 þeirra tyrkneskir ríkisborgarar. Í dag léti ríkisstjórnin sem hún sæi ekki hina 100.000 sem væru ólöglegir innflytjendur en það gæti hinsvegar breyst á morgun og þeim skipað að fara til heimalandsins. 

Erdogan sagði viðurkenningar Svía og Bandaríkjamanna einnig meiðandi fyrir Armena og málið væri í pattstöðu. Áður hafði Tigran Sarkisian forsætiráðherra Armena sagt á þingi að yfirlýsingar Erdogans gerðu lítið til að bæta samskipti þjóðanna.

Þjóðunum ber ekki saman um hve margir Armenar voru drepnir í Tyrklandi á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar þegar ríki Ottómana var að liðast í sundur. Armenar segja nær eina og hálfa milljóna manna hafa verið myrta en Tyrkir telja að hálf milljón sé nærri lagi. Auk þess hafi einnig fjöldi Tyrkja týnt lífi.

Nú hafa yfir tuttugu ríki samþykkt ályktanir þess efnis að framið hafi verið þjóðarmorð á Armenum, en þeir hafa barist fyrir slíkri viðurkenningu á alþjóðavettvangi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is