Erlent
| mbl
| 20.3.2010
| 8:45
Atkvæðagreiðsla á morgun
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiðir á morgun atkvæði um frumvarp til breytinga á heilbrigðiskerfinu. Demókratar eru sannfærðir um að frumvarpið verði samþykkt. Obama forseti hefur sett frumvarpið efst á forgangslista stjórnar sinnar.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, segir að þingið sé nálægt því að samþykkja lög sem marki þáttaskil og eigi eftir að mikla þýðingu fyrir fólk í Bandaríkjunum. 216 atkvæði þarf til að fá lög samþykkt í fulltrúadeildinni.
Barack Obama er í Virginiu. Hann sagði að það væri kominn tími á endurbætur í heilbrigðismálum. Fólk væri búið að bíða nógu lengi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






