Frieda Pinto næsta Bond-stúlka

Freida Pinto með mótleikara sínum í Viltu vinna milljarð, Dev Patel. Þau hafa verið par ... stækka

Freida Pinto með mótleikara sínum í Viltu vinna milljarð, Dev Patel. Þau hafa verið par síðan þau léku í myndinni. MARIO ANZUONI

Frieda Pinto hefur skrifað undir samning um að leika í næstu James Bond mynd. Pinto skaust upp á stjörnuhiminn þegar hún lék í óskarsverðlaunamyndinni „Slumdog Millionaire“.

Næsta Bond mynd verður sú 23. í röðinni og sögusvið hennar er í Afganistan. Leikstjóri myndarinnar verður Sam Mendes. Handritshöfundur er Peter Morgan. Undirbúningur myndarinnar er kominn vel á veg.

Haft er eftir Pinto að það hafi alla tíð verið draumur hennar að leika í Bond mynd. Hún kemur til með að leika á móti Daniel Craig sem fer með hlutverk James Bond. Bandaríska leikkonan Olivia Wilde mun einnig leika í myndinni. Hún leikur starfsmann Sameinuðu þjóðanna sem starfar í Afganistan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is