Prófkjör á Akranesi

Akranes. Samfylkingarmenn þar í bæ skipa á framboðslista sinn í dag. stækka

Akranes. Samfylkingarmenn þar í bæ skipa á framboðslista sinn í dag. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Átta taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akranesi sem haldið er í dag. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi sækist aðeins eftir fyrsta sætinu. Þrír aðrir sækjast vilja einnig í það eða þau næstu fyrir neðan: Hrönn Ríkharðsdóttir, Björn Guðmundsson og Einar Benediktsson.

Prófkjörið fer fram í húsnæði Samfylkingarinnar við Stillholt á Akranesi og lýkur kl. 15.00 í dag. Úrslit í prófkjörinu verða tilkynnt upp úr 16 á kaffihúsinu Skrúðgarðinum. Í framhaldi af því að úrslit vals í efstu sætin eru kynnt verður haldinn kjörfundur, þar sem kjörgengir félagsmenn boðið sig fram í 4.  til 9. sæti framboðslistans.

Kosningarétt á kjörfundinum og í prófkjörinu hafa allir Akurnesingar í Samfylkingunni með lögheimili á Akranesi sem náð hafa 16 ára aldri og skráðu sig í Samfylkingarfélagið í bænum fyrir miðnætti  14. mars sl.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is