Innlent
| mbl
| 20.3.2010
| 11:39
Veitti áverka með brotnu glasi
Einn er í haldi lögreglu eftir líkamsárás í húsi við Mánagötu í Reykjavík í nótt. Þar veittist maður að öðrum með brotnu glasi og veitti honum áverka, sem reyndust þó ekki alvarlegir og er þolandinn ekki í lífshættu.
Atvikið varð undir morgun. Báðir mennirnir eru af erlendu bergi brotnir, skv. upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem segir málið að mestu upplýst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






