Áfengisneysla vex í BNA
Áfengisdrykkja hefur aukist í Bandaríkjunum. Nú segjast 67% fullorðinnar Bandaríkjamanna fá sér í glas við og við. Þetta er hæsta hlutfall neytenda áfengis í 15 ár. Bjór er vinsælasta áfengið og næst honum koma létt vín og brennd vín, samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallup.
Áfengisneyslan var almennust á árunum 1976-78 þegar 71% Bandaríkjamanna kváðust drekka áfengi. Hins vegar var minnst drukkið 1958 þegar einungis 55% svarenda sögðust fá sér neðan í því. Gallup hóf að kanna algengi áfengisdrykkju í Bandaríkjunum árið 1939.
Áfengisdrykkjan var ólík eftir aldurshópum. Þannig drakk fólk á aldrinum 18-54 ára mest (72%) og næst þessum aldurshópi kom fólk 55 ára og eldra (59%). Gallup gerði könnunina frá 8.-18. júlí og spurði 1.020 fullorðna.
Það reyndist vera marktækur munur á drykkjusiðum fólks eftir menntun. Þeir sem lokið höfðu minna háskólaprófi (college) drukku meira en þeir sem lokið höfðu framhaldsskóla (high school) og voru hlutföllin 79% á móti 58%.
Tekjur virtust einnig hafa áhrif á drykkjuna. Þannig sagðist 81% þeirra sem höfðu yfir 75 þúsund dollara í árslaun drekka. Svo dró úr drykkjunni eftir því sem efnin urðu minni og einungis 46% þeirra sem höfðu undir 20 þúsund dollara árslaun sögðust drekka áfengi.






