Danskur flokksleiðtogi kann að hafa brotið lög

Helle Thorning-Schmidt.

Helle Thorning-Schmidt. Reuters

Danskir fjölmiðlar segja, að Helle Thorning-Schmidt, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins, eigi yfir höfði sér sektir eða jafnvel allt að 4 mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa vísvitandi gefið yfirvöldum rangar upplýsingar um dvalartíma eiginmanns hennar í Danmörku. 

Eiginmaður Thorning-Schmidt er Stephen Kinnock en hann er sonur Neils Kinnocks, fyrrum leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Stephen býr og vinnur í Sviss hjá Alþjóðaviðskiptaráðinu.

Blaðið B.T. birti í gær fréttir um að  Thorning-Schmidt hefði veitt dönskum stjórnvöldum misvísandi upplýsingar um hversu oft eiginmaður hennar hefði verið í Danmörku. Hún sagði dómsmálaráðuneytinu í fyrrahaust, að hann hefði verið í Danmörku um hverja helgi og voru þær upplýsingar veittar til að styðja umsókn um að Kinnock fengi að vera skráður meðeigandi að fasteign konu sinnar í Danmörku. 

Fyrr í þessum mánuði sagði Thorning-Schmidt hins vegar, að eiginmaður hennar væri aðeins í 33 helgar á ári í Danmörku og því ætti hann ekki að þurfa að borga skatta þar í landi.

Á fréttavef blaðsins Børsen er haft eftir sérfræðingum, að þetta mál kunni að verða til þess, að Helle Thorning-Schmidt geti ekki orðið forsætisráðherra Dana. 

Þá sagði skattalögfræðingurinn  Tommy V. Christiansen við TV2, að Thorning-Schmidt hafi vísvitandi veitt stjórnvöldum rangar upplýsingar og það sé refsivert. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is