Fáir óku of hratt á Suðurlandi

mbl.is

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Bláfjallaveg.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fóru 773 ökutæki eftir þessum vegarkafla á einni klukkustund eftir hádegi  og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt.

Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is