Erlent
| AFP
| 30.7.2010
| 21:26
Ísrael svarar eldflaug frá Gaza
Ísraelskar herþotur skutu flugskeytum á mörg skotmörk á Gaza í dag. Átta særðust í árásunum að sögn vitna og sjúkraliðs. Árásirnar voru gerðar eftir að eldflaug sem var skotið frá Gaza lenti á borginni Ashkelon í Suður-Ísrael. Eldflaugin olli nokkru tjóni en ekki mannskaða.
Sjúkraflutningamenn sögðu að herþoturnar hafi skotið að minnsta kosti fjórum flugskeytum á hús sem öryggissveitir Hamas nota í Gazaborg. Herflugvélar réðust einnig á göng undir landamærin við Egyptaland sem smyglarar nota. Enginn særðist í þeim árásum.
Talsmenn Ísraelshers tjáðu sig ekki um árásirnar en Ísraelar eru vanir að bregðast við eldflaugaárásum frá Gaza.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






