Jöfn og þétt umferð

Mikil umferð er á þjóðvegunum. stækka

Mikil umferð er á þjóðvegunum. Brynjar Gauti

Umferð hefur verið jöfn og þétt út frá höfuðborgarsvæðinu í dag. Umferð hefur verið mikil í umdæmum lögreglunnar á Selfossi og í Borgarnesi. Allt hefur þó gengið greiðlega og stóráfallalaust.

Jöfn og þétt umferð hefur verið um Selfoss en dreifst vel. Hvorki hafa komið gusur né myndast stíflur eins og stundum hefur gerst á föstudögum í sumar, að sögn Selfosslögreglunnar. 

Þung umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í báðar áttir en þó ívið meiri í átt frá höfuðborgarsvæðinu. Mikið eftirlit er á vegunum. Lögreglan í Borgarnesi nýtur aðstoðar frá umferðardeild ríkislögreglustjóra og eins frá lögreglunni í Stykkishólmi. 

Borgarneslögreglan hefur gómað sjö með fíkniefni frá því að umferðin tók að þyngjast um miðjan dag í gær. Áfram verður fylgst með fíkniefnaflutningum. 

Ökumaður sofnaði undir stýri þar sem hann ók um Holtavörðuheiðina snemma í morgun. Hann fékk aðstoð við að koma bílnum aftur upp á veg og gat haldið ferð sinni áfram, enda glaðvakandi eftir að hafa húrrast út af veginum.

Reiknað er með 15-17 þúsund manns á unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um helgina. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is