Kærðir fyrir fiskveiðibrot

Hópsnes GK er eins og Stella GK svonefndur Gáskabátur. stækka

Hópsnes GK er eins og Stella GK svonefndur Gáskabátur. mbl.is/Hafþór

Gefin verður út ákæra vegna meintra ólöglegra veiða línubátanna Stellu GK og Hópsness GK á lokuðu svæði norður af Siglufirði í gær. Kvartanir bárust frá öðrum fiskiskipum vegna veiða bátanna, að sögn Landhelgisgæslunnar.

Við nánari eftirgrennslan virtist svo sem fótur væri fyrir kvörtununum. Landhelgisgæslan óskaði eftir því að lögreglan á Siglufirði tæki skýrslu af skipstjórum bátanna þegar þeir komu inn til Siglufjarðar til löndunar. Nú hefur verið ákveðið að gefa út ákæru á hendur skipstjórunum vegna meintra fiskveiðibrota.

Lögreglustjórinn á Akureyri fer með rannsókn málsins. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is