Innlent
| mbl
| 30.7.2010
| 20:34
Léku golf í pilsum
Árlegt hatta- og pilsamót Golfklúbbs Akureyrar fór fram í dag. Þetta mót er nokkuð sérstakt vegna þess að það er aðeins opið konum og skilyrði er að þær klæðist pilsi eða kjól og helst eiga þær að vera með hatta. Hælaháir skór eru þó ekki staðalbúnaður.
Rúmlega 40 konur tóku þátt í mótinu þar sem skemmtunin þykir mikilvægari en úrslitin. Samkvæmt norðlenskum heimildum mbl.is býður kvennanna ýmis glaðningur á golfvellinum, þar á meðal eitthað í bauk, hvað sem það nú þýðir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






