Innlent
| mbl
| 30.7.2010
| 6:57
Undir áhrifum með barn í bílnum
Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í gærkvöldi akstur pars sem ók í gegnum bæinn. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að bæði voru þau undir áhrifum fíkniefna og með ungt barn í bílnum. Auk þess fundust fíkniefni á ökumanninum. Mikið hefur verið um fíkniefnaflutning í gegnum bæinn.
Að sögn varðstjóra komu upp tvö mál í nótt sem tengjast akstri undir áhrifum fíkniefna auk þess sem upp kom mál eldsnemma í morgun sem tengist fíkniefnaflutning á Akureyri, en þar fer sem kunnugt er fjölskylduhátíðin Ein með öllu.
Ekki er um mikið magn efna að ræða, en nákvæmar upplýsingar liggja ekki fyrir. Aðallega eru menn að flytja með sér kannabisefni en einnig amfetamín. Lögreglan í Borgarnesi verður áfram með hert eftirlit í dag.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin