Unnur Tara á leið til Ungverjalands?

Unnur Tara Jónsdóttir í leik gegn Grindavík. stækka

Unnur Tara Jónsdóttir í leik gegn Grindavík. Árni Sæberg

Svo gæti farið að Unnur Tara Jónsdóttir tæki ekki þátt í titilvörn Íslandsmeistara KR í körfuknattleik kvenna á næstu leiktíð. Unnur gekk til liðs við KR á síðustu leiktíð og var kjörin besti leikmaður úrslitakeppninnar.

Morgunblaðið bar þetta undir Hrafn Kristjánsson þjálfara KR en hann tók við liðinu í sumar af Benedikt Kristjánssyni. „Unnur hefur reynt að komast inn í læknisfræðina hérlendis en það gekk ekki. Hún sendi einnig inn umsókn til Ungverjalands í hálfkæringi og það gekk eftir. Það er bara ánægjulegt fyrir hana og ég býst fastlega við því að hún láti á það reyna,“ sagði Hrafn við Morgunblaðið í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is