Zarudneva fagnaði sigri eftir mikla baráttu

ulia Zarudneva frá Rússlandi fagnaði sigri í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna í kvöld á Evrópumeistaramótinu ... stækka

ulia Zarudneva frá Rússlandi fagnaði sigri í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna í kvöld á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona. Hún hljóp vegalengdina á 9.17,57 mínútum. Reuters

Julia Zarudneva frá Rússlandi fagnaði sigri í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna í kvöld á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona. Hún hljóp vegalengdina á 9.17,57 mínútum.

Marta Domínguez frá Spáni sótti hart að Zarudnevu á lokasprettinum en það dugði ekki til. Domínguez kom í mark á tímanum 9.17,74 mínútu. Liubov Kharlamova frá Rússlandi varð þriðja á 9.29,82 mínútum.                

Gulnara Samitova-Galkina á heims-og Evrópumetið í greininni 8.58,81 mínútur sem hún setti árið 2008.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is