15 þúsund á þjóðhátíð

Margir eru skrautlega klæddir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. stækka

Margir eru skrautlega klæddir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. mbl.is/Sigurgeir

Stöðugur straumur gesta hefur verið til Vestmannaeyja síðasta sólarhringinn og áætlar lögregla nú að fjöldi gesta sé kominn í 15 þúsund. Enn eru margir væntanlegir í dag, kvöld og á morgun.

Lögreglan í Eyjum segir, að talsverður erill hafi verið þar í nótt en engin meiriháttar óhöpp hafi komið.  Ein líkamsárás var kærð en þar var um að ræða 17 ára pilt, sem sló jafnaldra sinn.  

Alls komu upp 11 fíkniefnamál og hafa 20 slík komið upp í Eyjum frá því á fimmtudag. Stærsta fíkniefnamálið kom upp í gærkvöldi þar sem fundust 44 grömm af amfetamíni á einum manni og telur lögregla að þau hafi verið ætluð til sölu á hátíðinni.  

Fjórir gistu fangageymslur í nótt og einn þeirra fyrir að brjótast inn í verslunina Pennann við Bárustíg.

Um 120 manns sinna gæslustörfum í Herjólfsdal á álagstímum.  Þá eru 16 lögreglumenn á vakt og 11 lögreglumenn með þrjá hunda sem sinna fíkniefnaeftirliti.

Lögreglustjórarnir á Suðurlandi komu til Eyja í dag til þess að kynna sér löggæslu á þjóðhátíð og fóru þeir Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Hvolsvelli, Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Selfossi og Þorgrímur Óli Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um hátíðarsvæðið í fylgd Karls Gauta Hjaltasonar, lögreglustjórans í Vestmannaeyjum og hans manna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is