Brúðkaupsæði í Rhinebeck
Mikið brúðkaupsæði hefur runnið á íbúa bæjarins Rhinebeck í New York ríki í Bandaríkjunum þar sem Chelsea Clinton, dóttir Bills og Hillary Clinton, ætlar að gifta sig í kvöld.
Að sögn bandarískra fjölmiðla ríkir einskonar karnívalstemmning í bænum þótt leynd hvíli yfir brúðkaupinu og engum óviðkomandi sé hleypt nálægt húsinu þar sem það fer fram. Hefur meira að segja verið sett flugbann yfir bæinn svo óprúttnir ljósmyndarar komist ekki of nálægt brúðhjónunum.
Bandarísk götusölublöð segja, að þetta sé brúðkaup aldarinnar. Margir hafa lagt leið sína til bæjarins í þeirri von að koma auga á fræga fólkið, sem boðið hefur verið í brúðkaupsveisluna.
Foreldrar brúðarinnar, Bill, fyrrum Bandaríkjaforseti, og Hillary, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, komu til Rhinebeck í gær. Von er á ýmsu frægu fólki í dag, svo sem sjónvarpskonunni Oprah Winfrey. Einnig er talið að kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg sé á meðal boðsgesta og hugsanlega John Major, fyrrum forsætisráðherra Breta.
Chelsea, sem er þrítug, er að giftast Marc Mezvinsky, sem er 32 ára. Miklar vangaveltur hafa verið um brúðkaupið í bandarískum fjölmiðlum, sem hafa úr litlum upplýsingum að moða. Þó hefur heyrst, að Vera Wang hafi teiknað brúðarkjólinn og að brúðkaupið muni kosta 3-5 milljónir dala.








