Erilsöm nótt í Eyjum

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var sett í gær. stækka

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var sett í gær. mbl.is/Sigurgeir Jónasson

Nóttin var töluvert erilsöm hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Upp komu nokkur fíkniefnamál. Nokkrir fengu gistingu í fangageymslum lögreglunnar. Þær eru alls sex talsins en voru ekki allar setnar. Fólk var að skemmta sér í Dalnum fram undir morgun.

Töluvert miklu fleiri voru í brekkunni í gærkvöldi en vani er til á föstudagskvöldi á Þjóðhátíð. Von er á fleiri gestum í dag en Herjólfur mun sigla fjórar ferðir úr Landeyjahöfn í dag og mun vera uppselt í einhverjar þeirra.

Von er á nánari upplýsingum um atburði næturinnar frá yfirmönnum lögreglunnar í Vestmannaeyjum síðar í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is