Fimm létust í bílslysi í Kaupmannahöfn
Kastrupflugvöllur í Kaupmannahöfn. mbl.is
Fimm manns, fjórir karlmenn og ein kona, létu lífið þegar ökumaður sendibíls missti stjórn á honum á Amagerhraðbrautinni skammt frá Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn í nótt. Að sögn Berlingske Tidende var bíllinn með danskar númeraplötur en að sögn lögreglu voru að minnsta kosti einhver hinna látnu Tékkar.
Slysið varð laust fyrir klukkan 3 að dönskum tíma. Bílnum var ekið á miklum hraða í átt að Kastrup og Svíþjóð þegar ökumaðurinn missti stjórnina og bíllinn lenti á vegriði af miklu afli.
Tveir menn sátu í framsætum bílsins og voru með bílbelti. Annar var úrskurðaður látinn þegar að var komið en hinn nokkrum mínútum síðar. Hin þrjú voru í farangursrými bílsins og köstuðust út úr honum við áreksturinn.






