Fyrrum lögreglustjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot
Fyrrum lögreglustjóri í Svíþjóð var í gær dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir nauðganir og fleiri kynferðisbrot. Þá var hann dæmdur til að greiða samtals 300 þúsund sænskar krónur, tæpar 5 milljónir íslenskra króna, í bætur til þriggja kvenna sem hann braut gegn.
Maðurinn, sem heitir Göran Lindberg og var lögreglustjóri í Uppsala og þar áður rektor sænska lögregluháskólans, var alls ákærður fyrir 23 kynferðisbrot, þar á meðal að nauðga ungum stúlkum. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð.
Alvarlegasta brotið var gegn 17 ára stúlku árið 2007. Fram kom í málinu að Lindberg batt hana á höndum og fótum með leðurreimum, sló hana í andlitið og víðar og nauðaði henni ítrekað. Er stúlkan sögð hafa beðið varanlegan líkamlegan skaða af.
Lindberg viðurkenndi við réttarhöldin að hafa keypt vændisþjónustu, sem er ólöglegt í Sviþjóð, en neitaði ákærunum fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot.






