Innlent
| mbl
| 31.7.2010
| 18:37
| Uppfært
19:00
Hart barist í mýrarboltanum
Hart var barist á mýrarboltamótinu í Tungudal við Ísafjörð í dag. Var þetta sjötta Evrópumótið, sem þar fer fram í þessari óvenjulegu íþrótt þar sem þeir þykja standa sig best sem verða skítugastir.
Rúmlega 30 lið voru skráð til leiks, 22 karlalið og 13 kvennalið. Mótið stendur nú yfir í tvo daga. Í dag var riðlakeppni en á morgun verða úrslit og einnig verður keppt í ýmsum aukagreinum eins og kajakdrætti.
Myndasyrpa: Slegist í drullunni
Hart var barist á mýrarboltamótinu í Tungudal við Ísafjörð um verslunarmannahelgiona. Var þetta sjötta Evrópumótið, sem þar fer fram í þessari óvenjulegu íþrótt þar sem þeir þykja standa sig best sem verða skítugastir.
Birtingardagur: Laugardaginn, 31. júlí 2010
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







