Innlent
| Morgunblaðið
| 31.7.2010
| 5:30
| Uppfært
6:02
Nýtt hitamet kann að verða sett í dag
Hitamet í júlímánuði kann að verða slegið í Reykjavík í dag. Hlýjasti júlímánuður sem hefur mælst í Reykjavík var árið 1991 en þá mældist meðalhitastigið 13,03 gráður.
Eftir mælingar í gær var meðalhitastig júlímánaðar 13,00. Það vantar því tveggja aukastafa breytingu á meðalhitastigi til að setja nýtt met. Mælingar eru framkvæmdar á þriggja klukkustunda fresti allan sólarhringinn.
Júnímánuður var sá hlýjasti sem mælst hefur í Reykjavík og því mikil tíðindi ef hlýjasti júlímánuður fylgir beint á eftir, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






