26 fasteignir seldar á Akureyri í ágúst

Frá Akureyri stækka

Frá Akureyri mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í ágúst 2010 var 26. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 498 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 423 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,3 milljónir króna, samkvæmt vef Þjóðskrár.

Á sama tíma var 2 samningum þinglýst á Akranesi. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 42 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 14 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 398 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,4 milljónir króna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is