Benayoun með þrennu

Yossi Benayoun í þann veginn að skora eitt markanna í leiknum í kvöld. stækka

Yossi Benayoun í þann veginn að skora eitt markanna í leiknum í kvöld. Reuters

Yossi Benayoun, leikmaður Englandsmeistara Chelsea í knattspyrnu, skoraði þrennu í kvöld þegar Ísraelsmenn lögðu Möltubúa að velli, 3:1, í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu, en leikið var í Ramat Gan í Ísrael.

Benayoun kom Ísraelsmönnum yfir snemma leiks en Jamie Pace jafnaði fyrir Möltubúa og staðan var 1:1 í hálfleik. Benayoun, sem kom til Chelsea frá Liverpool í sumar, skoraði síðan tvívegis í seinni hálfleik, fyrra markið úr vítaspyrnu.

Þjóðirnar leika í F-riðli keppninnar ásamt Króatíu, Grikklandi, Lettlandi og Georgíu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is