Bílvelta í Böðvarsdal

Fólkið var flutt til aðhlynningar á Vopnafirði. stækka

Fólkið var flutt til aðhlynningar á Vopnafirði. Jón Sigurðarson

Engin slys urðu á fólki er bílaleigubíll valt við brú í Böðvarsdal á Austurlandi um þrjúleytið í dag. Bíllinn, lítill fólksbíll, skemmdist mikið og var fluttur á brott með kranabíl. Farþegarnir, karl og kona, voru fluttir til aðhlynningar á Vopnafirði en þeir sluppu við meiðsli.

Ökumaðurinn og farþegi hans eru af erlendu bergi brotnir.

Innt eftir aðstæðum á slysstað segir lögreglan á Egilsstöðum þær hafa verið eins og best verður á kosið, bjart og þurrt, og að því megi leiða líkur að því að augnabliks aðgæsluleysi ökumanns hafi verið um að kenna.

En vegurinn er malarvegur og er talið að bíllinn hafi snúist og svo oltið við brúna.

Að sögn lögreglunnar á Egillsstöðum eru merkingar við brúna ekki frábrugðnar því sem gengur og gerist.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is