Elvar skoraði fimm mörk

Elvar Friðriksson í uppstökki í leik með Val gegn HK. stækka

Elvar Friðriksson í uppstökki í leik með Val gegn HK. Eggert Jóhannesson

Elvar Friðriksson, fyrrverandi leikmaður Vals í handknattleik, var næst markahæstur hjá danska liðinu Lemvig með fimm mörk þegar það vann nágrannaliðið, Team Tvis Holstebro, í æfingaleik í fyrrakvöld, 28:26.

Þetta var síðasti æfingaleikur liðanna áður keppni í dönsku úrvalsdeildinni hefst um helgina. Fyrsti leikur Elvars og félaga verður reyndar ekki fyrr en á þriðjudag. Þá taka þeir á FIF frá Kaupmannahöfn, en með því liði leikur Gísli Kristjánsson.

Elvar gekk til liðs við Lemvig í sumar frá Val.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar


finnur.is