Gagnrýna Framtakssjóð

Merki VM. stækka

Merki VM.

„Stjórn VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir furðu sinni á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur þær fara langt fram úr samþykktum sjóðsins,“ segir í tilkynningu félagsins en stjórnin segir ekki útilokað að lífeyrissjóður félagsmanna VM dragi sig út úr sjóðnum.

Í tilkynningu frá félaginu segir: 

„Stjórn VM telur að til greina komi að lífeyrissjóðir félagsmanna VM dragi sig út úr Framtaksjóðnum. Ekki hafi verið farið eftir þeim verklagsreglum og samþykktum sem stjórnir lífeyrissjóða okkar félagsmanna gengu útfrá þegar þær samþykktu að leggja fjármuni í sjóðinn.

Stjórn VM telur að það skaði Framtakssjóð Íslands og geri hann ótrúverðugan að tengjast banka eða bönkum.

Stjórn  VM lýsir yfir áhyggjum sínum af því að í framhaldi af þessum fjárfestingum verði settur þrýstingur á lífeyrissjóðina að koma með fjármagn inn í fyrirtæki sem Framtaksjóðurinn fjárfestir í til að verja fjárfestingar hans.

Það er skoðun stjórnar VM að til að hægt verði að byggja upp traust verði að tryggja gegnsæi og að farið verði eftir samþykktum og lögum í samfélaginu.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is