Hátt gengi jensins til trafala

Merki japanska bílarisans. stækka

Merki japanska bílarisans. Reuters

Hátt gengi japanska jensins er farið að valda Toyota, stærsta bílaframleiðanda heims, verulegum erfiðleikum. Gengi jensins hefur ekki verið jafn hátt gagnvart Bandaríkjadal í 15 ár og leita þarf 9 ár aftur í tímann til að finna jafn sterka stöðu gjaldmiðilsins gagnvart evru.

Bandaríska dagblaðið fjallar um gengisvandann með þeim orðum að bílar Toyota séu orðnir of dýrir sem aftur skapi sóknarfæri fyrir keppinauta á borð við Volkswagen, Hyundai og bandarísk bílafyrirtæki.

Segir þar einnig að suðurkóreski bílaframleiðandinn Hyundai hafi blásið til markaðssóknar, þar með talið í Bandaríkjunum og Kína, og njóti þar góðs af því svigrúmi sem methagnaður skapi til að bjóða kostakjör sem Toyota eigi erfitt með að keppa við.

Talsmenn Volkswagen eru einnig stórhuga og hefur blaðið eftir Martin Winterkorn, forstjóri fyrirtækisins, að það stefni á að verða stærstu bílasmiðjur heims árið 2018 miðað við sölur. 

Fyrirtækið er nú í þriðja sæti en skammt er síðan Toyota náði fyrsta sætinu af General Motors.

Ástæðan fyrir sterku gengi jensins er meðal annars rakin til þess að fjárfestar hafi leitað í gjaldmiðilinn sem örugga höfn eftir að fjármálakreppan skall á.

Hvað Toyota snertir er það álitinn veikleiki að bílasmiðjurnar setja aðra hverja bifreið sem þau smíða saman í heimalandinu, sem aftur eykur áhrifin af gengissveiflum upp á við á söluna utan landsins.

Athygli vekur að tekið er fram að Toyota Yaris kosti nú hátt í 15.000 dollara í Kína, eða sem svarar 1,8 milljón króna, en til samanburðar kostar nýr Yaris frá Toyota-umboðinu í Reykjavík frá 2,66 milljónum króna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is