Erlent
| mbl
| 2.9.2010
| 20:56
Olíuskip strandar
Olíuskip með 9 milljónir lítra af díselolíu innanborðs strandaði er það var á leið um siglingaleið í Norður-Kanada í dag. Larry Trigatti, talsmaður kanadísku strandgæslunnar, fullyrðir að engin olía leki frá skipinu.
Fullyrðir Trigatti jafnframt að skipið sé óskemmt og að vatn hafi ekki lekið í það. Olíuskipið var að ferja olíu til afskekktra byggða ínúíta þegar slysið varð.
Aðeins er um vika síðan skemmtiferðaskipið Clipper Adventurer strandaði á sömu slóðum en það er enn fast á sama stað. Hafa farþegarnir allir verið fluttir frá skipinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






