Persónulegur friðarfundur
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, hittust augliti til auglits í Hvíta húsinu í dag án aðstoðarmanna eða túlka. Þeir hafa ákveðið að haldra friðarviðræðum áfram 14. og 15. september.
Að sögn AFP-fréttastofunnar var tilgangurinn með svo persónulegum fundi að byggja upp traust á milli leiðtoganna.
En Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lagt þunga áherslu á að þoka friðarviðræðum áfram, nú þegar um tveir mánuðir eru til þingkosninga í Bandaríkjunum.
Áður en leiðtogarnir ræddust við einir tóku Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og George Mitchell, sérlegur erindreki Bandaríkjastjórnar í Miðausturlöndum, þátt í viðræðunum í Hvíta húsinu.
Samningamaður Palestínustjórnar og ísraelskur kollegi hans gengu svo inn á fundinn og tóku þátt í viðræðunum.






