Innlent
| Morgunblaðið
| 3.9.2010
| 5:30
Áframhaldandi hlýindum spáð á Norðurlandi
Mjög heitt hefur verið í veðri á Norðurlandi og síðdegis í gær komst hitinn í 22,4 gráður í Ásbyrgi. Nærri 22 stiga hiti var á Möðruvöllum og mældust 21,6 gráður á Húsavík.
Á Akureyri var 20 stiga hiti og sól og nýtti Sonja Bríet Steingrímsdóttir tækifærið og fór með ömmusystur sinni, Steinunni Kr. Ævarsdóttur, í sund og ekki er annað að sjá á myndinni en að þær stöllur hafi skemmt sér konunglega.
Spáð er ríkjandi suðaustanátt og áframhaldandi hlýindum á Norðurlandi næstu daga og ljóst að haustið er ekki komið þangað ennþá.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






