Birkifeti og asparglytta eflast

Bú holugeitunga. stækka

Bú holugeitunga. mbl.is/Þorkell

Býsveif er nýr landnemi á Íslandi, asparglyttu hefur vaxið fiskur um hrygg í höfuðborginni í sumar og birkifeti hefur verið öflugur sem aldrei fyrr í bláberjalyngi.

Átvaglið Spánarsnigill hefur hins vegar haldið sig til hlés og það sem virtist ætla að verða sumar holugeitunganna varð endasleppt og þeir sjást varla á sama tíma og allt hefði átt að vera kvikt af þeim.

Þannig gerir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun, upp sumarið á hraðferð. Í samtali í Morgunblaðinu í dag segir hann, að stærsta spurningarmerkið setji hann við holugeitungana.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is