Boða aðhald í rekstri Roche

Hoffmann-La Roche-lyfjarisinn í Sviss framleiðir meðal annars Tamiflu stækka

Hoffmann-La Roche-lyfjarisinn í Sviss framleiðir meðal annars Tamiflu Reuters

Stjórnendur svissneska lyfjafyrirtækisins Roche boðuðu í dag miklar aðhaldsaðgerðir í rekstri félagsins sem geta leitt til uppsagna starfsfólks. Segir í tilkynningu frá Roche að helsta ástæðan séu auknar kröfur um sparnað í heilbrigðiskerfi ríkja Evrópu og Bandaríkjunum.

Nánari upplýsingar um til hvaða aðgerða verður gripið og hvaða áhrif þetta mun hafa á störf starfsfólks verða veittar fyrir árslok.
Alls starfa um 80 þúsund manns hjá Roche, sem meðal annars framleiðir Tamiflu flensulyfið. Á árum áður var Íslensk erfðagreining í nánu samstarfi við lyfjaframleiðandann á sviði erfðarannsókna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is