Innlent
| Morgunblaðið
| 3.9.2010
| 5:30
Íslenskar gulrófur nú á boðstólum allt árið
Garðyrkjubændur byrja margir í þessari viku að taka grænmeti upp úr útigörðum til geymslu fyrir veturinn.
Útlit er fyrir ágæta uppskeru og það grænmeti sem farið hefur á markað í sumar hefur selst vel.
Bændurnir í Þórisholti í Mýrdal hafa náð þannig tökum á ræktun og geymslu gulrófna að þeir geta verið með rófur til sölu allt árið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Vel lítur út með gulrófnauppskeruna. Sömu sögu hefur Þröstur Jónsson hjá Garðyrkjustöð Sigrúnar í Hrunamannahreppi að segja, en þau hjónin eru stórir kálræktendur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






