Ísraelar tortryggnir á viðræðurnar

Þeir Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels, Barack Obama Bandaríkjarforseti og Mahmud Abbas leiðtogi Palestínu við upphaf ... stækka

Þeir Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels, Barack Obama Bandaríkjarforseti og Mahmud Abbas leiðtogi Palestínu við upphaf viðræðnanna í Washington. Reuters

Jákvæðan tón má almennt greina í ísraelskum fjölmiðlum í dag, eftir upphaf nýrra friðarviðræðna við Palestínumenn í Bandaríkjunum í gær. Þó er sterkur undirtónn efasemda og velta því margir fyrir sér hvernig málin muni þróast eftir að „sýningunni" í Washington lýkur.

Dálkahöfundar virðast almennt á sama máli um að upphaf viðræðnanna í Hvíta húsinu í gær hafi verið pólitískt leikhús. Efast margir um af núverandi leiðtogar þjóðanna séu hæfir til þess að ná sögulegum sáttum. „Það sem borið var á borð fyrir okkur í Washington í gær var leikhús. Það var virðingarvert...svo virðingarvert að það var leiðgjarnt," segir pistlahöfundurinn Nahum Barnea m.a. í hinu víðlesna dagblaði Yediot Aharonot.

Hann lýsir engu að síður almennri bjartsýni með viðræðurnar og bendir á að aðkoma Bandaríkjanna að friðarferlinu sé sterk og að forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu virðist einlægur í viðleitni sinni til að ná samkomulagi. „Lesendur sem hafa fyrir löngu síðan misst vonina um að eitthvað muni koma út úr friðarathöfnum í Washington velta því vafalaust fyrir sér hvort þessar nýjustu viðræður séu að einhverju leyti ólíkar öllum þeim sem á undan fóru," skrifar Barnea.  „Já, þær eru ólíkar. Það hefur orðið mikil breyting á nálgun Bandaríkjamanna. Kannski var þetta ekki bara sýning í þetta skiptið."

Hægri sinnaða dagblaðið Jerusalem Post lýsir meiri efasemdum, sérstaklega með Mahmud Abbas leiðtoga Palestínu. „Í hjarta okkar þráum við hinsvegar sárlega að sjá þessar efasemdir okkar afsannaðar," skrifar ritstjórinn David Horowitz. Dagblaðið Maariy segir að friðarviðræðurnar séu dæmdar til að mistakast, en þær kunni hinsvegar að gefa Barack Obama færi á því að koma með sína eigin lausn á deilunni sem báðar hliðar geti sameinast um.

„Obama skilur að friðarferlið, eins og við þekkjum það, er úr sér gengið og að ef Ísraelar og Palestínumenn geta ekki breytt hugsunarhætti sínum, þá þurfi það kannski að vera Bandaríkin sem gera það," segir í leiðara blaðsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is