Veröld/Fólk
| AFP
| 3.9.2010
| 23:16
John Woo heiðraður í Feneyjum
Leikstjórinn John Woo var í kvöld heiðraður á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir ævistarfið. Woo tileinkaði móður sinni Gullna ljónið og sagði að hann tileinkaði verðlaunin þeirri manneskju sem fyrst fór með hann í kvikmyndahús og sagði honum að ef hann myndi ætla sér eitthvað þá gæti hann látið þann draum rætast, sagði Woo þegar hann tók við verðlaununum.
Woo, sem er frá Hong Kong, öðlaðist fyrst frægð á vesturlöndum með kvikmyndinni The Killer árið 1989. Í dag var nýjasta kvikmynd Woo, Reign of Assassins frumsýnd í Feneyjum en hann leikstýrir henni með Su Chao-Pin.
Woo, sem nýlega flutti aftur til Kína eftir að hafa búið og starfað í Hollywood í sextán ár, segir að nýr kafli sé hafinn í lífi hans, kafli með nýjum draumum.
Alls keppa 24 kvikmyndir um aðalverðlaun hátíðarinnar, Gullna ljónið, en verðlaunin verða afhent þann 11. september nk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






