Erlent
| mbl
| 3.9.2010
| 21:31
| Uppfært
21:58
Jörðin hristist í 40 sekúndur
Jarðskjálftinn sem varð á syðri eyju Nýja-Sjálands í nótt að staðartíma varði í um 40 sekúndur. Nú þegar birta er tekið af degi syðra kemur umfang eyðileggingarinnar stöðugt betur í ljós. Eignatjón er mikið en ekki vitað um manntjón að svo stöddu.
Eins og sjá má í þessu myndskeiði frá Reuters-fréttastofunni er eignatjón verulegt í Christchurch, annarri stærstu borg landsins.
Þótt jarðskjálftar séu tíðir á Nýja-Sjálandi þarf að leita aftur til 1968 til að finna dæmi um eignatjón af þeirra völdum.
Þá týndu þrír lífi í skjálfta sem var 7,1 stig, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa nú lýst yfir neyðarástandi í borginni Christchurch.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






