Kostnaður við olíulekann kominn í 8 milljarða
Olíurisinn BP tilkynnti í dag a olíulekinn á Mexíkóflóa hefði kostað fyrirtækið 8 milljarða Bandaríkjadala fram til þessa. Í því felst meðal annars kostnaður við hreinsun, borun, steypu í borholuna, styrkir til samfélagsins við flóann og bótakröfur að því er segir í yfirlýsingu frá BP.
Lekinn hófst þann 20. apríl þegar sprenging varð í olíuborpallinum Deepwater Horizon, sem varð að eldhafi í kjölfarið og með þeim afleiðingum að 11 starfsmenn létust. Pallurinn sökk í hafið 2 dögum eftir sprenginguna. Ekki tókst að stemma stigu við olíulekanum fyrr en tæpum þremur mánuðum síðar, þann 15. Júlí.
BP hefur spáð því að slysið muni á endanum kosta fyrirtækið um 32.2 milljarði dala. Á öðrum ársfjórðungi nam tap fyrirtækisins 16.9 milljörðum, vegna lekans, og var það mesta ársfjórðungstap í sögu breskra fyrirtækja. Í yfirlýsingu BP í dag var ítrekað að fyrirtækið samþykkti að koma upp bótasjóði upp á 20 milljarði dala fyrir íbúa sem verða fyrir áhrifum vegna olíulekans.






