Nemendur í hættu í Krossá

Ungmennin á bakka Krossár fylgjast með rútunni. stækka

Ungmennin á bakka Krossár fylgjast með rútunni. mynd/Reynir Jónsson

Um 50 nemendum úr 10. bekk í Lindaskóla í Kópavogi var bjargað úr rútu á vegum Teits Jónassonar sem festist í eðju í Krossá síðdegis í gær. Eins og sjá má munaði minnstu að rútan færi á hliðina. Unglingarnir voru á leið í nokkurra daga Þórsmerkurferð með kennurum sínum. Svo fór að brjóta varð afturrúðu rútunnar og ferja börnin með handafli yfir á þurrt land.

Reynir Jónsson var á ferð í jeppa sínum með ferðamenn og kom að staðnum rétt eftir óhappið. Hann segir suma nemendurna eðlilega hafa verið smeyka en aðra nokkuð hressa. Flestir hafi haft mestar áhyggjur af farangrinum, þ. á m. ipodum og öðru sem varð eftir rútunni.

„Þau voru komin út en rútan var þegar hálffull af vatni,“ segir Reynir. „Hún hefur sest á afturendann og þá hefur vatnið grafið hratt undan henni.“ Þótt allt hafi farið vel sé enginn vafi á að mikil hætta hafi verið á ferðum. Rútan er aðeins með drifi að aftan en Reynir segir að oft sé farið á þannig farartækjum yfir ána þótt hún sé varasöm.

Rútan í ánni eftir að börnunum hafði verið bjargað út.

Rútan í ánni eftir að börnunum hafði verið bjargað út. mynd/Berglind Birna

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is