Norðmenn ósáttir við Rúnar „njósnara“

Rúnar Kristinsson. stækka

Rúnar Kristinsson. mbl.is/Jakob Fannar

Samkvæmt frétt norska dagblaðsins Dagbladet í dag laumaði Rúnar Kristinsson þjálfari KR sér inn á lokaða æfingu norska landsliðsins á Laugardalsvelli í gær. Rúnar hefur aðstoðað landsliðsþjálfarann Ólaf Jóhannesson með því að leikgreina andstæðinga Íslands og í gær sat Rúnar upp í stúku Laugardalsvallar og horfði á æfingu Norðmanna. „Ég sá liðið,“  sagði Rúnar við sjónvarpsstöðina TV2 í gær.

Frétt TV2 í heild sinni.

 Egill „Drillo“ Olsen þjálfari Norðmanna var ekki ánægður þegar fréttamenn sögðu honum frá því að Rúnar hefði séð æfinguna. „Þegar það er lokuð æfing þá á hún að vera lokuð,“  sagði Olsen við sjónvarpsstöðina TV2 í gær.

„Þetta eru brot á reglum og ég vona að þetta sé ekki rétt sem þú segir,“ bætti Ola By Riise aðstoðarþjálfari Noregs við.  Brede Hangeland fyrirliði norska landsliðsins og leikmaður Fulham í ensku úrvalsdeildinni telur að Íslendingar hafi gert mistök með því að njósna á æfingunni. „Þetta er ekki nógu gott hjá þeim og ég held að við verðum bara hefna fyrir þetta í leiknum,“  sagði Hangeland.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is