Teitur stýrir Whitecaps í MLS-deildinni

Teitur Þórðarson stækka

Teitur Þórðarson mbl.is/Kristinn

Teitur Þórðarson hefur verið endurráðinn þjálfari kanadíska knattspyrnuliðsins Vancouver Whitecaps. Hann fær þar með það skemmtilega verkefni að stýra því á fyrsta ári þess í MLS-deildinni, efstu atvinnudeildinni í Norður-Ameríku, en þar er félagið með keppnisrétt frá og með næsta ári, 2011.

Teitur tók við liði Whitecaps í ársbyrjun 2008 en hann hafði hætt störfum hjá KR á miðju sumrinu þar á undan. Whitecaps hefur gengið að óskum undir hans stjórn. Liðið vann USL-1 deildina á fyrsta ári og hreppti annað sætið í henni 2009. Á þessu tímabili er liðið í NASL-2 deildinni og er sem stendur í toppsætinu.

„Teitur hefur skilað frábæru starfi í hálft þriðja ár sem leiðtogi og kennari. Gífurleg reynsla hans sem þjálfari og leikmaður í sterkum deildum í Evrópu hefur haft geysileg áhrif á allt okkar félag. Teitur hefur víða náð árangri og setur ávallt markið hátt fyrir sjálfa sig og aðra,“ sagði Bob Lenarduzzi, forseti Whitecaps og fyrrum landsliðsmaður Kanada, í tilkynningu frá félaginu.

„Það er tilhlökkunarefni að fást við þá áskorun að stjórna liðinu í efstu deild í Norður-Ameríku,“ sagði Teitur í sömu tilkynningu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is