Álftanes fékk endurfjármögnun

Álftanes var komið í vanskil hjá lánasjóði sveitarfélaga. stækka

Álftanes var komið í vanskil hjá lánasjóði sveitarfélaga. mbl.is/Ómar

Lánasjóður sveitarfélaga veitti sveitarfélaginu Álftanesi tæplega 39 milljóna króna lána til að endurfjármagna eldra lán sveitarfélagsins sem komið var í vanskil.

Lánasjóður sveitarfélaga veitir sveitarfélögum lán gegn veði í tekjum þeirra. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í vikunni gekk sjóðurinn í fyrsta skipti að veði í tekjum sveitarfélags á fyrri hluta þessa árs.

Ekki fékkst upplýst hjá sjóðnum hvaða sveitarfélag átti í hlut en samkvæmt bréfum sjóðsins til ráðherra sveitarstjórnarmála sem fengust í ráðuneytinu var Álftanes skuldarinn, að því er fram kemur í ítarlegri umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is