Erlent
| mbl
| 4.9.2010
| 6:59
| Uppfært
7:14
Blair: Öfgafullir múslímar mesta ógnin
Fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, segir að öfgafullir múslímar sé mesta ógnin í heiminum í dag. Þetta kemur fram í viðtali við Blair í dag í tengslum við nýútkomnar endurminningar hans á BBC.
Hann segir að þeir trúi því að engu skipti hvað gert sé svo lengi sem það er í nafni málstaðar sem þeir berjist fyrir. Þar megi nefna notkun efnavopna, kjarnorkuvopna og lífefnavopna.
Blair sem var forsætisráðherra Bretlands þegar landið tók þátt í innrás í Afganistan og Írak með Bandaríkjunum að hans eigin stefna hafi verið einkennst af ofstæki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






