Ellefu i fangageymslu en nóttin þægilega róleg

stækka

mbl.is/Júlíus

Ellefu manns gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn lögreglumanns á vakt var nóttin þó „þægilega róleg“ en þeir sem náttstað höfðu hjá lögreglunni voru flestir þangað komnir vegna ölvunar. Tveir voru teknir við ölvunarakstur en var sleppt eftir að tekið hafði verið blóðsýni úr þeim.

Brotist var inn í Skemmtigarðinn í Grafarvogi sem stendur á Gufunesi. Lögreglan náði þeim sem þar voru að verki og handtóku áður en þeir komust á brott með nokkuð verðmætt. Hafði þeim þó tekist að „taka til talsvert af varningi,“ eins og segir í dagbók lögreglu. Mennirnir brutu rúðu til að komast inn.

Ein minniháttar líkamsárás í kom til kasta lögreglu. Hafði þar mönnum sem úti voru að skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur lent saman þannig að til handalögmála kom.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is